01
Úttekt
Við greinum hvar fyrirtækið þitt stendur í AI-leit í dag: sýnileiki, aðgengi gervigreindar að vefnum, skipulögð gögn og umtal.
Spotlight aðstoðar þig við að birtast á ChatGPT, Gemini, Claude og víðar
Birtist þú í svörunum?
Sífellt fleiri viðskiptavinir spyrja ChatGPT, Gemini eða Perplexity í stað þess að fletta upp í Google. Gervigreindin svarar beint, með örfáum fyrirtækjum í niðurstöðum og hin sjást ekki.
Ef gervigreindin þekkir ekki fyrirtækið þitt ertu einfaldlega ekki með. Ekki á blaðsíðu tvö, ekki neðar í listanum: hvergi. Og hefðbundin leitarvélabestun dugar ekki ein og sér til að birtast.
GEO, eða Generative Engine Optimization, kallast sú aðferð að gera fyrirtæki sýnilegt í svörum gervigreindar. Sífellt fleiri spyrja ChatGPT, Gemini, Claude og Perplexity í stað þess að fletta leitarniðurstöðum. Samkvæmt spá Gartner dregst hefðbundin leit saman um 25 prósent fyrir árið 2026. Svarið sem gervigreindin gefur ræður því hvaða fyrirtæki viðskiptavinurinn velur.
GEO byggir á þremur stoðum. Í fyrsta lagi þarf vefurinn að vera opinn og læsilegur fyrir gervigreindarvélar. Í öðru lagi þarf efnið að svara spurningum beint, með skýrum skilgreiningum og tölfræði sem hægt er að vitna í. Að lokum þarf fyrirtækið sterka entity-nærveru: skipulögð gögn, umtal og traustar heimildir sem staðfesta hver stendur á bak við vefinn.
Fá íslensk fyrirtæki hafa tekið GEO föstum tökum. Þau sem byrja núna ná forskoti sem erfitt verður að vinna upp síðar. Spotlight er íslensk GEO-stofa. Greining okkar sýnir til dæmis á nokkrum sekúndum hvar vefurinn þinn stendur.
Lestu meira um GEO01
Við greinum hvar fyrirtækið þitt stendur í AI-leit í dag: sýnileiki, aðgengi gervigreindar að vefnum, skipulögð gögn og umtal.
02
Við lagfærum vefinn, byggjum upp efni sem gervigreind getur vitnað í og styrkjum stafræn fótspor fyrirtækisins.
03
Við fylgjumst með hvort og hvernig gervigreindin vísar í fyrirtækið þitt og sýnum þér þróunina svart á hvítu.
AI sýnileiki er mælikvarði á það hversu vel fyrirtæki birtist og er vitnað í það í svörum gervigreindar. Samkvæmt OpenAI nota yfir 800 milljónir manns ChatGPT í hverri viku og Google segir AI Overviews ná til yfir tveggja milljarða notenda í hverjum mánuði. Í hverju svari nefnir gervigreindin samt aðeins örfá fyrirtæki.
Spotlight mælir AI sýnileika íslenskra fyrirtækja með ókeypis úttekt og bætir hann síðan með markvissum aðgerðum.
Lestu meira um AI sýnileikaÁ bakvið Spotlight er nær tveggja áratuga reynsla af leitarvélabestun, auglýsingum og vefmálum fyrir íslensk og erlend fyrirtæki. Spotlight er systurfyrirtæki Works, sem sérhæfir sig í sjálfvirknivæðingu.